• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Ljósmyndir / Afmæli 2008

Afmæli 2008

28. July, 2008 8 Comments

Þar sem maður átti víst stórafmæli í vikunni þá fannst mér viðeigandi að halda smá upp á að vera orðinn kvartöldungur og bauð til veislu. Það var grillað hið fínasta ungnauta rib eye og á meðan tókum við nett myndasession…

Grill photo session

Þetta var bara rétt byrjunin – yfir kvöldið voru teknar kringum 400 myndir og eru þær komnar hingað. Takkinn “festist” stundum inni þannig að inn á milli koma svona 10-30 myndir af sama hlutinum ;) Yfirleitt þegar ég set inn myndir þá hendi ég út auka myndum sem eru frekar svipaðar eða af sama hlutinum – en ekki í þetta skiptið… þetta er bara allur pakkinn. Ég ætlaði reyndar fyrst að setja þessar myndir inn á Facebook til að geta taggað þær alveg í klessu en eftir að hafa prófað svona 6 sinnum og fá alltaf “Upload Failed. Please try again.” þá gafst ég upp – Facebook er nú kúl síða en mynda fídusinn þeirra fær ekki alveg 10 stjörnur.

Eftir matinn (sem var virkilega góður) var pakkatími. Ég fékk snilldargjafir – Svona Fisheye Lomography myndavél sem ég hef verið að spá í að fá mér nokkuð lengi – mér finnst lomo myndir frekar kúl og líka fisheye myndir, þannig að þetta er brillíant combo :)

Fisheye2

Fisheye2 camera

Þetta gerir myndavél númer 5 sem ég eignast – maður er kominn með nokkuð gott myndavéla arsenal ;) Langt síðan maður hefur tekið á filmu – verður spennandi að leika sér með það inn á milli. Strákarnir voru reyndar búnir að taka 18 myndir á filmuna áður en þeir mættu – verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því… Ég ætlaði með filmuna í framköllun í dag en lókal búðin er ekki opin á sunnudögum – þá fer ég bara first thing in the morning.

Síðan fékk ég Courvoisier VSOP koníak sem er náttúrulega bara pimp :)

Le Cognac de Napoleon

Þá er náttúrulega við hæfi að skella inn smá tóndæmi:

Busta Rhymes – Pass the Courvoisier

Enda var þetta lag spilað þegar ég opnaði pakkann :)

Þótt margar af myndunum í þessu albúmi séu svona nokkuð random þá eru alveg frekar margar nokkuð flottar þarna inn á milli. Besta trikkið til að mynda partý er að skilja myndavélina eftir einhvers staðar þannig að hver sem er getur gripið hana og smellt nokkrum af – þannig að ég á ekki heiðurinn af nema litlum hluta af þessum myndum.

Já, ég segi bara takk fyrir mig – maður þarf klárlega að gera svona aftur fljótlega…

We got food everywhere as if the party was catered.

Share this:

  • Share
  • Click to share on Facebook (Opens in new window) Facebook
  • Click to share on X (Opens in new window) X
  • Click to share on Tumblr (Opens in new window) Tumblr
  • Click to share on Pinterest (Opens in new window) Pinterest
  • Click to share on Reddit (Opens in new window) Reddit
  • Click to share on LinkedIn (Opens in new window) LinkedIn
  • Click to print (Opens in new window) Print
  • Click to email a link to a friend (Opens in new window) Email

Filed Under: Ljósmyndir, Tónlist Tagged With: afmæli, áfengi, fjör, gjafir, grill, kúl, lomography, Matur, myndavél, partý

Reader Interactions

Comments

  1. Haukur says

    28. July, 2008 at 9:58

    You got that right . Allt í lagi við erum að fara sína öllum niðurdegnum íslendingum á á suðurlandsundirlendi hvernig við gerum það í vestrinu.

    Reply
  2. Einar says

    28. July, 2008 at 12:05

    Takk fyrir mig aftur, tær snilld

    Reply
  3. Bjössi says

    28. July, 2008 at 13:11

    Takk kærlega fyrir mig, þetta var mjög ánægjulegt kvöld, eins og þessar fáu ljósmyndir sem voru teknar sýna.

    Ég hlakka mikið til að sjá svarthvítu fish eye myndirnar. Það klárlega gefur gjöfinni framhaldslíf, enda verður photo sessionið Urban Life tímalaus snilld.

    Reply
  4. maple says

    29. July, 2008 at 9:28

    pfp aoef vdoooooooooospppppppppppf spdfo sdo apfeo fssssssssssspf sdof eajiejfijsijiv siosd enenen soid aðððððððif oaisdjf vvivivi sebebaældkdnkdæa asidfj vðaio ebebwpiuu adöew fbqbqbbei saælepp a’ prrrrpppfprrrrrrrrrrrrpaoeooe

    Reply
  5. Trausti says

    2. August, 2008 at 16:19

    Virðist hafa verið klassa afmæli, leiðinlegt að missa af því. Segi bara aftur til hamingju með afmælið!

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.
  • Remote Sparks – Async Work

Copyright © 2025 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...