Hvað er í gangi?

January 27th, 2010 @ 23:42

Iceland Airwaves 2009 videos – part 1

Ég tók upp nokkur (stutt) myndbönd á Iceland Airwaves. Hérna er fyrsti skammturinn – frá fyrsta degi Airwaves.


Ramses – Live at The Battery – Iceland Airwaves 2009


Retro Stefson – Live at Sódóma – Iceland Airwaves 2009


Retro Stefson – Live at Sódóma – Iceland Airwaves 2009


Dynamo Fog – Live at Sódóma – Iceland Airwaves 2009

Meira síðar…

I have this condition.
October 15th, 2009 @ 1:25

Iceland Airwaves 2009 – Day 1 – Ramses, Retro Stefson, Dynamo Fog… – myndir, maður!

Upphitunar DJ

Já, já… Iceland Airwaves 2009 er hafið – snilld! Airwaves er klárlega stærsti menningarviðburður Íslands á hverju ári. Ég er ekki frá því að ég sé sammála Söru í Nakta Apanum með það að þetta sé skemmtilegra og meira spennandi en jólin.

Ég byrjaði að fara í Batteríið til að sjá Ramses opna hátiðina. Hann var með fínustu hljómsveit með sér. Töff íslenskt hip-hop. Rétt leit inn á Nasa þar sem maður náði nokkrum lögum með Morðingjunum – ágætis rokk í harðari kantinum. Síðan hoppaði ég yfir á Sódóma þar sem maður rétt náði í restina af Cynic Guru. Stuttu seinna fóru Retro Stefson að setja upp sínar græjur. Það var gott partý hjá Retro Stefson, gífurlegur hressleiki. Góðar líkur á að maður tékki á þeim aftur á laugardaginn á Nasa.

Næstir á dagskrá voru Dynamo Fog – var ekki alveg að fíla fyrstu lögin þeirra, kannski var það bara söngurinn, annars var þetta fínt rokk. Svo fór maður aftur yfir á Nasa þar sem Juvelen voru að ljúka sér af, veit ekki alveg… var ekkert að heilla mig upp úr skónum. Beið í smá stund eftir Kimono og hlustaði á hægt og rólegt rokk hjá þeim í smá tíma áður en maður sagði þetta gott fyrir fyrsta kvöldið af Iceland Airwaves ‘09.

Þetta var bara nokkuð góð byrjun á Airwaves – hef aldrei tekið svona massívan miðvikudag áður.

Já, og sjá… það eru myndir. Ég tók náttúrulega ljósmyndir hægri vinstri eins og ég er vanur. Njótið.

Það er sko meira »

Hannes - Just walkin'... I am official station Pen and paper I am Hannes, I'm a code monkey Aðgangur bannaður fyrir fólk með dökkt hár Iceland Airwaves 2006 - Reykjavik Art Museum Just grillin'... Maple grilling Here fishy, fishy... Attention: Keep gun holstered. FIRE KILLS CHILDREN! Erpur Blazroca - I am Hannes, I'm creative Iceland Airwaves 2005 - Nasa Gin and tonic Mary Jane vodka Inter Rail - Russian train Eiffel Tower Entrance to Internet Hostel Rock am Ring 2004 - Linkin Park Hump cutout postcard Turn me on

 

© 2010 Hannes · Hafðu samband / Contact me