
Ég keypti lénið GSDMF punktur COM fyrir möööörgum árum og hef í langan tíma verið á leiðinni að setja upp eitthvað skemmtilegt todo app þar. Ég hef byrjað nokkrum sinnum að fikta smá, gert tilraunir með mismunandi tæknilausnir og útfærslur, en aldrei komist nógu langt…
Þangað til núna! Með hjálp nýjustu tækni var það geranlegt í hjáverkum. Þetta er eiginlega eins og ✨töfrar✨ Mér dettur í hug útfærsla varðandi nýja virkni eða lagfæringar, sendi inn fyrirmæli og það verður að veruleika nokkrum mínútum seinna 🚀
GSDMF stendur fyrir Get Stuff Done, My Friend. Eeeeeða… örlítið grófari (spicy) útgáfu sem fólk getur séð á síðunni 😈
Í gegnum árin hef ég prófað ótal mismunandi todo/skipulags öpp – og GSDMF er að hluta byggt á innblæstri frá þeim. Heimurinn þarf vissulega ekki enn annað basic todo app, þannig að ég vildi finna einstakan vinkil (smá syllu). Ég er í raun búinn að vera þróa þessa hugmynd og punkta hjá mér pælingar í möööörg ár.
Hópurinn sem ég hafði sérstaklega í huga fyrir GSDMF er fólk með eitt eða fleiri hliðarverkefni, áhugamál eða skapandi verkefni í gangi. Eitt vandamál með hliðarverkefni er að það líða oft dagar eða vikur á milli þess þegar þú kemst næst í að sinna þessu verkefni/áhugamáli. Þá er mikilvægt að geta auðveldlega komið sér aftur í gírinn, að muna hvað þú varst að pæla síðast og hver eru næstu skref.
GSDMF hjálpar með þetta – m.a. með sérstökum reitum fyrir “Future-me notes” þar sem þú getur skrifað upplýsingar sem hjálpa þér með “context switching”, eitthvað til að bæta við samhengi og rifja upp pælingarnar þínar.
Svo er alls konar önnur virkni þarna til að hjálpa fólki með yfirsýn, halda fókus og klára verkefni. Eins og “stale task review” sem hjálpar við að minna á verkefni sem þú hefur ekki snert í nokkurn tíma og til að kanna hvort þetta sé ennþá verkefni sem skiptir máli.
Það er frekar magnað að geta stemnings-forritað og sett breytingar í loftið hvar sem er – í bústaðnum, í hléi í bíói, á hótelherberginu í fríi, á röltinu, liggjandi uppi í sófa eða öðrum stöðum þar sem fólk grípur í símann.
Þótt þetta séu miklir töfrar og flýtir mikið fyrir, þá er langt frá því að maður geti “one-shot-að” svona flókið app. Ég er búinn að vera dunda mér við þetta í hjáverkum í 6 mánuði. Fyrir Lovable nördana: Ég er búinn að nota meira en 1,000 credits í þetta. Nýjustu fregnir frá Lovable eru að ég er í “Top 10% of Users” hjá þeim 🤓
Þetta er fullkomin vara til að “dogfood-a” – ég er búinn að vera nota GSDMF á fullu til að halda utan um hugmyndir, lagfæringar og þróun á GSDMF 🚀
Ef þú ert að sinna hliðarverkefnum eða öðrum áhugamálum væri gaman ef þú værir til í að prófa GSDMF (og láta mig vita hver upplifun þín var). Það er frítt! 💪✅
Síðast uppfært 31. July, 2026
Leave a Reply