• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Ljósmyndir / Orðinn alvöru listamaður

Orðinn alvöru listamaður

29. November, 2007 9 Comments

Nú verður Hlynur alveg brjálaður – neyðir mig örugglega til að segja upp… En já, það virðist sem maður sé orðinn alvöru “listamaður” ;) Fyrsta ljósmyndasýningin sem ég tek þátt í byrjar núna næsta laugardag (1. desember). Ljósmyndasafn Reykjavíkur er með sýningu 1. desember 2007 – 17. febrúar 2008 tileinkuð ljósmyndum af Flickr. Ég las um þetta project í einhverju blaði í haust (eða kannski rakst ég á þetta á flickr eða annarri síðu, man það ekki) og ég sendi inn nokkrar myndir. Hluti af þessum myndum voru samþykktar en eftir að það var búið að skera smá niður voru 3 myndir eftir. Það er búið að prenta út 220 myndir eftir 94 ljósmyndara en síðan verður þeim myndum sem komust í forvalið (500 stykki) varpað á vegg úr myndvarpa.

Þessar tvær myndir verða útprentaðar á sýningunni:

Apple Store - 5th Avenue

« Tók þessa í Apple búðinni á 5th Avenue í New York. Kom skemmtilega út að hafa tröppurnar svona glærar. Ef ég man rétt þá tók ég mynd af þessum tröppum af því að pabbi var að taka mynd af þeim ;)

Christmas Eve

« Þessi mynd var tekin aðfangadagskvöld 2005 – amma heitin og systir mín að “módelast” – alveg ekta jólamynd. Þetta var eiginlega svolítið heppni… ég var bara að leika mér eitthvað, ætlaði að sjá hvernig jólatréð kæmi út ef ég myndi slökkva á flassinu. Það að slökkva á flassinu þýddi að ljósopið var opið í heila sekúndu og alveg magnað hvað myndin er skörp þrátt fyrir það. Líka heppilegt að systir mín hafi verið með þessa jólasveinahúfu – gerir þetta enn jólalegra :)

Ef ég skildi þetta rétt þá verður þessum tveim myndum líka varpað á vegginn, ásamt þessari:

Times Square traffic

« Frekar töff mynd af Times Square. Öll þessi ljós koma skemmtilega út í þessu svartamyrkri. Þarna vorum við “fastir” í traffík en síðan tók ég aðra þar sem við vorum á hreyfingu sem mér finnst líka frekar flott. Eiginlega svipað og með Apple myndina þá fór ég að taka myndir út um gluggann á leigubílnum af því að pabbi var að gera það :)

Já, Flickr er alveg magnað fyrirbæri – vegna þess að ég ákvað að setja ákveðna mynd á Flickr þá er háskóli í New York að nota myndina í bæklingi hjá þeim – ..og núna eru barasta ljósmyndir eftir mig hluti af ljósmyndasýningu á safni. Ekki svo vitlaust að setja upp flickr síðu ef þú hefur áhuga á að koma ljósmyndunum þínum á framfæri.

Sýningin heitir flickr-flakk og heljarstökk (eða “flickr era – digital horizons” á enska mátann). Opnun er núna á laugardaginn 1. desember kl. 16 í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð 101 Reykjavík (sama hús og Borgarbókasafnið). Aðgangur er ókeypis þannig að allir eru velkomnir — og það verða “léttar veitingar” í boði – veit ekki nákvæmlega hvað það er – en ég les bara eitt úr því: Free booze! ;) (ábyrgist samt ekkert)

Þeir sem komast ekki laugardaginn en vilja samt tékka á þessu hafa nægan tíma, eins og ég sagði verður þessi sýning í gangi til 17. febrúar 2008. Samkvæmt heimasíðunni þeirra þá er opnunartími sýninga 12-19 virka daga og 13-17 um helgar.

Hérna eru síðan nokkrar myndir sem ég hef sett nýlega á flickr:

Full moon Elevator shaft Manchester ferris wheel Looking up Empire State This is New York I'm walking here Hyde Park Sunset in Croatia London skyline at night New York City pigeons A dog on Esja Reykjavik Culture Night fireworks Ljubljana tower window « þessi mynd er alveg að eyðileggja symmetríið, var að spá í að sleppa henni bara… Þetta var svo flott síðast.

She looks like a model. Except she’s got a little more ass.

Síðast uppfært 4. November, 2010

Share this:

  • Share
  • Click to share on Facebook (Opens in new window) Facebook
  • Click to share on X (Opens in new window) X
  • Click to share on Tumblr (Opens in new window) Tumblr
  • Click to share on Pinterest (Opens in new window) Pinterest
  • Click to share on Reddit (Opens in new window) Reddit
  • Click to share on LinkedIn (Opens in new window) LinkedIn
  • Click to print (Opens in new window) Print
  • Click to email a link to a friend (Opens in new window) Email

Filed Under: Ljósmyndir Tagged With: Apple, ego, fjölskylda, flickr, jól, microformats, new york city, Reykjavík

Reader Interactions

Comments

  1. Bergur says

    29. November, 2007 at 9:04

    Góður, hætta þessu forritunarrugli og fara lifa á listarmanna launum! ;)

    Reply
  2. Trausti says

    29. November, 2007 at 16:56

    Já, þú gætir orðið frægur eins og Ari Magg. Héðan í frá ætla ég að kalla þig Hannes Agg

    Reply
  3. maple says

    29. November, 2007 at 19:49

    nei
    neineineinei
    nú gengur þetta ekki lengur. Það er ekki hægt að vera bæði myndasnápur og forritari. ÞETTA GENGUR EKKI LENGUR!

    Reply
  4. maple says

    29. November, 2007 at 19:50

    andskotans óhlýðni og uppvaðsla

    Reply
  5. maple says

    29. November, 2007 at 19:51

    krakkaandskotar nú til dags

    Reply
  6. Bjössi says

    29. November, 2007 at 21:31

    margur verður af listamannalaunum api, allavegana fátækur.

    Reply
  7. Hannes says

    29. November, 2007 at 23:40

    hehe, Hannes Agg – líst vel á það :)

    maple – þú getur huggað þig við það að ég er búinn að leggja inn uppsagnarpappírana. Ég meina, fá listamenn ekki svo góða styrki? Síðan getur ekki verið mjög erfitt að selja hverja mynd á svona milljón kall…

    Reply
  8. Einar says

    1. December, 2007 at 22:43

    Congrats. Tölvunördisminn er the way to go. Þú getur bara þóst vera listamaður um helgar.

    Reply
  9. Hannes says

    2. December, 2007 at 0:20

    Hmm… já, það er pæling – kannski “nerd by day, artist by night”?

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.
  • Remote Sparks – Async Work

Copyright © 2025 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me