Fær maður ekki bónus stig fyrir að nota þrefalda neitun?
Ég er ekki frá því að ég sé ekki ósammála þér
Nei, bara pæling… ;) Stóð mig að því að nota þessa setningu í morgun.
Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)
Fær maður ekki bónus stig fyrir að nota þrefalda neitun?
Ég er ekki frá því að ég sé ekki ósammála þér
Nei, bara pæling… ;) Stóð mig að því að nota þessa setningu í morgun.
Kannski mjög eðlilegt, en mér finnst smá áhugavert að þegar venjulegar soðnar kartöflur eru í boði þá hef ég varla lyst á að borða eina kartöflu. En strax og það er búið að gera eitthvað við kartöflurnar – krydda þær, sósa þær upp, ofnbaka, brúna, djúpsteikja, grilla, skella smá osti yfir þær o.s.frv. þá get ég borðað alveg helling.
Pæling… :)
Ég er búinn að liggja í rúminu mest allan daginn. Með verki í maganum, flökurt, engin matarlyst… almennur slappleiki. Hugsanlega magavírus. Ég fór að hugsa um orðið “ógleði”. Ég var nú ekkert mjög hress, en ég var alveg glaður inn á milli yfir daginn :)
Þannig að maður getur verið með ógleði og gleði samtímis.
Nei, bara svona pæling ;)
Mér finnst orðið flus fyndið orð.
That is all.
Hver ætli uppruni þess sé? Flus… það sem maður flysjar af… Ég man ekki eftir neinu í ensku, dönsku eða þýsku sem gæti verið grunnurinn að orðinu.
Pæling.