• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
You are here: Home / Ferðalög / Hvað á ég að gera í New York?

Hvað á ég að gera í New York?

16. September, 2010 15 Comments

Fólk sem er á leiðinni til New York hefur verið að spurja mig hverju ég mæli með að það skoði og geri. Þannig að mér fannst upplagt að skella nokkrum punktum á bloggið.

230 Fifth

230 Fifth Rooftop Bar

Rooftop bar með magnað útsýni. Ég fór þarna tvisvar í síðustu New York ferð og mér fannst þessi staður algjör snilld. Fyrsta skiptið var sérstaklega skemmtilegt af því að við vissum ekkert hvers konar staður þetta var og ég bjóst ekki við þessu klikkaða útsýni (Empire State Building í öllum sínum skrúða), kom virkilega skemmtilega á óvart.

Í fyrra skiptið vorum við líka grand á því og keyptum okkur flösku(r) af Grey Goose þannig að við fengum okkar eigið borð og þjónustudömu sem sá um okkur (bottle service) – ekki leiðinlegt ;) Við þurftum líka eiginlega að kaupa þessa flösku til að komast hjá dress code og biðröðinni (sem var nokkuð löng).

Staðsetning – heimilisfangið er í nafninu, 230 á Fifth Avenue

Top of the Rock

Top of the Rock

Af öllu sem er nauðsynlegt að gera í New York þá er þetta eiginlega mikilvægasta – þú bara verður að fara alla leið upp og dást að útsýninu. Þarna sér maður hvað borgin er stór, byggingarnar magnaðar og Central Park víðáttumikill. Ég gæti verið þarna í marga klukkutíma.

Mér finnst skemmtilegra að fara upp á Top of the Rock heldur en Empire State Building – minna vesen, yfirleitt minni raðir. Ég reyndar hef gert það tvisvar að fara um daginn upp á Top of the Rock og svo um kvöldið upp á Empire State Building – maður verður eiginlega líka að sjá borgina í næturskrúðanum.

Staðsetning – 30 Rockefeller Plaza (W 50th St á milli 5th og 6th Ave)

The Lake í Central Park

The Lake í Central Park

Það er alltaf gaman að fara í Central Park og bara ganga um og tjilla, kannski fá sér kríublund ;) En núna í þessari ferð leigðum við okkur báta hjá The Central Park Boathouse við Stöðuvatnið (The Lake). Það var mjög gaman – skemmtilegt að sjá New York frá aðeins öðruvísi sjónarhorni.

Staðsetning – The Lake, ca. við 74th St

Burger Joint

Burger Joint

Mjög góðir hamborgarar. Skemmtileg stemning líka. Mjög spes að fara inn í þetta fína hótel, Le Parker Meridien, og finna brælulyktina í lobbýinu. Þetta er staðurinn sem Tommi var að reyna endurskapa með Hamborgarabúllunni.

Þetta er s.s. hægra megin við afgreiðsluna/móttökuna, lítill drungalegur gangur með litlu hamborgara-neon skilti við endann.

Staðsetning – Le Parker Meridien, 224 W 56th St

Tao

Tao restaurant

Mjög flottur veitingastaður. Mögnuð stemning. Mjög góður matur. Nett klúbbastemning – sérstaklega þar sem maður er í fordrykkjunum að bíða eftir borðinu (dúndrandi tónlist). Mæli með að panta borð með fyrirvara.

Staðsetning – 42 East 58th Street

Grimaldi’s

Grimaldi's Pizzeria

Við prófuðum nokkra af þeim helstu pizza stöðum í New York sem var mælt með og mér fannst þessi bestur. Pizzurnar á Lombardi’s voru reyndar svipaðar á bragðið en mér fannst einhvern vegin stemningin á Grimaldi’s skemmtilegri. Upplagt líka að nota tækifærið og labba yfir Brooklyn Bridge og tékka á útsýninu.

Það eru góðar líkur á að það sé biðröð, en hún ætti að hreyfast fljótt.

Staðsetning – 19 Old Fulton St (undir Brooklyn Bridge)

Shake Shack

Shake Shack in Madison Square Park

Mjög góðir hamborgarar. Mæli sérstaklega með ShackBurger – kjötið sem fer í þann börger er eitthvað sérvalið, extra special. Mér fannst hann mun betri en cheeseburger-inn hjá þeim.

Það er oft (mjög) löng röð en stundum getur maður verið heppinn – fyrsta skiptið biðum við í svona 30 mínútur, seinna skiptið vorum við heppnir og þurftum varla að bíða (en síðan svona 30 mínútum seinna var röðin orðin fáránlega löng). Þeir eru með Shack Cam fyrir þá sem vilja tékka hvort það sé löng röð ;)

Upplagt líka að prófa sjeikana hjá þeim (heitir nú einu sinni Shake Shack). Síðan eru þeir líka með nokkurs konar bragðarefi (Frozen Custard) sem eru mjög fínir.

Smá hamborgaragagnrýni:

Staðsetning – Madison Square Park (23rd St og Madison Ave)

—

Síðan eru náttúrulega ótal aðrir hlutir sem maður getur prófað: Tékkað á Times Square (passið ykkur samt á “tourist traps” – fólk að reyna pranga einhverju upp á ykkur hvort sem það eru geisladiskar eða miðar á sýningar), skoðað Apple Store á 5th Avenue (mér finnst það mjög flott og skemmtileg búð), gengið um SoHo (mjög skemmtilegt hverfi), farið á Museum of Modern Art (mæta snemma, tekur góðan tíma að fara í gegnum allt) og önnur söfn… Síðan er eiginlega óhjákvæmilegt að maður fari með neðanjarðarlestinni og gulum New York leigubíl hingað og þangað – mér finnst það líka skemmtileg upplifun.

Hefur þú komið til New York? Hverju mælir þú með? Var ég að gleyma einhverju?

All the crazy shit I did tonight, those will be the best memories

Síðast uppfært 15. January, 2011

Share this:

  • Share
  • Facebook
  • Twitter
  • Tumblr
  • Pinterest
  • Reddit
  • LinkedIn
  • Print
  • Email

Filed Under: Ferðalög, Ljósmyndir, Matur, Video Tagged With: 230 fifth, Apple, brooklyn, burger joint, central park, djamm, Empire State Building, foursquare, gagnrýni, Grimaldi's, new york city, shake shack, tao, times square, top of the rock

Reader Interactions

Comments

  1. maple says

    16. September, 2010 at 22:47

    ég hef komið til new york.

    Reply
  2. Hannes says

    16. September, 2010 at 23:43

    @maple: Það er nú ánægjulegt að heyra :) Er eitthvað sérstakt sem þú mælir með að fólk upplifi í New York City? Eitthvað sem fólk má alls ekki láta fram hjá sér fara?

    Reply
  3. maple says

    17. September, 2010 at 2:20

    nei

    Reply
  4. maple says

    17. September, 2010 at 2:20

    jú, labba niðrá wall street og ground zíró

    Reply
  5. Trausti says

    17. September, 2010 at 9:15

    hamborgavídjóið er epískt

    Reply
  6. Bjössi says

    17. September, 2010 at 9:56

    Ég hef líka komið til New York, tvisvar.

    Reply
  7. Hannes says

    17. September, 2010 at 10:56

    @Trausti: Virkilega ánægjulegt að heyra :)

    @Bjössi: Stórglæsilegt :) Þá hlýtur þú að vita um einhverjar NYC perlur. Hverju mælir þú með að fólk tékki á?

    Reply
  8. Pétur frændi says

    17. September, 2010 at 15:04

    Sem fyrrverandi nýju-jórvíkur finnst mér þetta vera skemmtilegt framtak hjá þér. Það er nú svo margt að skoða í NYC hvað maður fer að skoða fer eftir hvernig landið liggur hverju sinni. En mér finnst skemmtilegt að ganga í rólegheitunum niður Broadway frá Union Square (14. stræti). Margt skemmtilegt að sjá og gera og fullt af skemmtilegum, litlum veitíngahúsum/börum á leiðinni. Nú svo eru söfnin eins Metropolitan Museum á 5th Ave. og Museum of Natural History, Intrepid flugsafnið við Hudson River. Maður sér borgina frá öðruvísi sjónarhorni með að taka ferjuna til Staten Island.

    Reply
  9. Hannes says

    17. September, 2010 at 16:01

    @Pétur: Já, ég fór einmitt með State Island Ferry í fyrsta skipti í þessari ferð núna í sumar – en veðrið var ekki alveg eins og best var á kosið (þoka og rigning). Samt mjög gaman að sjá borgina frá þessu sjónarhorni.

    Reply
  10. Ingólfur says

    27. September, 2010 at 22:47

    Ég mæli með að ganga Brooklyn brúnna á enda og sjá Manhattan úr fjarlægð

    Reply
  11. Ingólfur says

    27. September, 2010 at 22:55

    Ég sá að þú hafðir mælt með brúnni svo til að leggja eitthvað í púkkið mæli ég einnig með http://www.frick.org/
    safni sem heitir Frick Collection gott safn listaverka sem hægt er að virða fyrir sér í ró og næði. Svo er er Central Park. Gaman að fá sér mat í hádeginu á Boat house

    http://www.thecentralparkboathouse.com/

    Reply
  12. Hannes says

    27. September, 2010 at 22:57

    @Ingólfur: Já, sammála. Það er mjög skemmtilegt að ganga Brooklyn brúnna – upplagt líka að grípa eina pítsu hjá Grimaldi’s í lokinn ;)

    Reply
  13. Hannes says

    27. September, 2010 at 23:28

    @Ingólfur: Jamm, við leigðum einmitt bátana hjá The Central Park Boathouse – en við prófuðum ekki matinn þar, kannski að maður geri það næst :)

    Reply

Leave a Reply Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Creativity App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.

Copyright © 2023 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...