• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Akureyri 2009 – gíra sig upp fyrir GusGus – model photo sessions

18. April, 2009 Leave a Comment

Eftir matinn á Friðrik V þá var næst á dagskrá tónleikar GusGus í Sjallanum.

Við fórum aftur upp á gistiheimilið til að gíra okkur upp, skipta um föt og svona… og reyna að finna eitthvað fyrirpartý. Á meðan tók maður smá myndavéla flipp ;)

[Read more…] about Akureyri 2009 – gíra sig upp fyrir GusGus – model photo sessions

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir Tagged With: Akureyri, gusgus

Akureyri 2009 – rölta og keyra um Akureyri

18. April, 2009 Leave a Comment

Áður en við fórum út að borða á Friðrik V þá röltum við smá um Akureyri. Eftir að hafa labbað í kuldanum fórum við á Café Amour og fengum okkur heitt kakó til að hlýja okkur aðeins…

Aðstoðamaðurinn minn, Hlynur, tók yfir myndavélina mína í smástund og graffaði helling á meðan ég var að keyra…

[Read more…] about Akureyri 2009 – rölta og keyra um Akureyri

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir Tagged With: Akureyri, bíll, brunahani, skilti, snjór

Akureyri 2009 – mættir, út að borða á Friðrik V

18. April, 2009 2 Comments

Þá vorum við mættir á Akureyri. Við skelltum okkur á gistiheimilið, tjilluðum smá og röltum að lokum á veitingastaðinn Friðrik V. Á leiðinni löbbuðum við fram hjá brekkunni hjá sundlauginni þar sem var búið að flytja snjó til að búa til brekku fyrir einhverja skíða/bretta-keppni sem var þarna í gangi.

Maturinn á Friðriki V var náttúrulega virkilega góður og gífurlega góð stemmning.

[Read more…] about Akureyri 2009 – mættir, út að borða á Friðrik V

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir Tagged With: Akureyri, baðherbergi, klósett, Matur, skilti

Akureyri 2009 – keyra til Akureyrar

16. April, 2009 Leave a Comment

Ég skellti mér til Akureyrar um páskana með Hlyni, Lauritz og Óla. Palli (okkar inside man á Akureyri) fékk líka að fljóta með. Aðal ástæðan fyrir þessu ferðalagi voru tónleikar GusGus í Sjallanum (af því að við erum svo miklar grúppíur).

Ég tók náttúrulega slatta af myndum og ég ætla að setja þær inn í nokkrum pörtum.

Hérna eru myndir úr fyrsta hluta ferðarinnar – keyrslan til Akureyrar. Maður á kannski ekki að vera taka myndir á meðan maður er að keyra en eitthvað verður maður að gera á svona ca. 5 tíma ferðalagi ;)

[Read more…] about Akureyri 2009 – keyra til Akureyrar

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir Tagged With: Akureyri, bíll, snjór

WordPress bloggið mitt var hakkað með C99madShell

15. April, 2009 Leave a Comment

Ég var að skoða StatCounter loggana mína í gær eins og ég geri reglulega og ég tók eftir einhverju undarlegu – einhver Rússi var að hnýsast þar sem hann átti ekki að vera. Ég skoðaði þetta nánar og lenti á síðu sem leit svona út:

c99madshell madnet edition screenshot

Ekki gott. Fyrsta sem ég gerði var að henda möppunni þar sem þessi php skrá var til henda út þessu C99madShell hack forriti – hakkarinn hafði falið þessa skrá í möppu fyrir theme sem ég var ekki að nota. Síðan breytti ég lykilorðunum mínum og hafði samband við support hjá DreamHost til að tékka hvort þeir gætu hjálpað mér með þetta (loka fyrir öryggisholur svo þetta komi ekki aftur fyrir). Ég blokkaði líka IP töluna hjá þessum hacker með .htaccess skránni.

Oft þegar síður eru hakkaðar bæta þeir við einhverjum kóða á sjálfa vefsíðuna og þess vegna skoðaði ég source-inn á blogginu mínu og viti menn, neðst á síðunni sá ég þetta:

html source code - c99madshell - moviebery

Eftir mikla leit fann ég hvar kóðinn var sem skrifaði út þennan falda link – í skránni wp-blog-header.php (sem er í rótinni þar sem bloggið er vistað, s.s. ekki í möppunum wp-content, wp-admin eða wp-includes) og leit svona út:
echo ' <a href="http://www.moviebery.com/" style="display:none;">Download Movies</a>';
Þannig að ég fjarlægði bara þessa línu og núna virðist allt líta rétt út.

Eftir að hafa rætt við DreamHost er möguleiki að þessi hakkari hafi komist inn í gegnum gamlar útgáfur af WordPress sem DreamHost geymir sem archive/backup þegar maður upgrade-ar WordPress í gegnum One-Click Installs fídusinn þeirra… Ég er búinn að loka fyrir þetta og vonandi eru ekki fleiri öryggisholur opnar.

Jæja, þá er þetta yfirstaðið og við skulum halda áfram venjulegri dagskrá með rugli, bulli og flottum ljósmyndum :)

Partner let me upgrade you

Filed Under: Tækni Tagged With: öryggi, DreamHost, WordPress

Street photography – götuljósmyndir af vesturbænum

29. March, 2009 Leave a Comment

Mér fannst alveg upplagt að nýta mér þessa fínu birtu sem var í dag – rölta smá um og taka myndir. Eins og í síðasta sunnudags ljósmynda-göngutúri þá er þetta mjög random – bara ljósmyndir af hinu og þessu. Eins og síðast þá notaði ég lenshood og UV filter til að (vonandi) fá aðeins betri myndir og minna lens glare.

[Read more…] about Street photography – götuljósmyndir af vesturbænum

Filed Under: Gallery, Ljósmyndir Tagged With: bekkur, brunahani, skilti, snjór, vesturbærinn

  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 89
  • Page 90
  • Page 91
  • Page 92
  • Page 93
  • Interim pages omitted …
  • Page 115
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • GSDMF – To-Do App fyrir hliðarverkefni
  • Mini Movie Reviews – Kvikmyndagagnrýni
  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.

Copyright © 2026 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
Loading Comments...