• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Iceland Airwaves 2010 – Dagur 1 – MYNDIR!

14. October, 2010 1 Comment

Snilld! Iceland Airwaves er byrjað aftur… Þetta er það besta sem gerist á hverju ári á Íslandi. Það liggur við að maður segi að Iceland Airwaves sé mitt Ramadan/Yom Kippur/páskar… þetta er svo mikil snilld. Þetta er heilög hátíð.

Fyrsti dagurinn var mjög góður – góð byrjun á þessari snilldar tónlistarhátíð. Henti mér bara strax á Nasa þar sem Benny Crespo’s Gang voru að fara byrja. Við lentum reyndar í smá biðröð en hún hreyfðist ágætlega – biðum bara í svona 15 mínútur (I’ve had worse). Síðan var það Bloodgroup sem voru að gera góð hluti – fínasta elektró. Öll lögin voru kannski ekki 100% algjör snilld, en mörg virkilega góð.

Næst var það Agent Fresco sem eru í harðari kantinum, en samt nokkuð melódískir. Það myndaðist smá mosh pit. Góður kraftur í gangi. Mammút voru síðust á svið. Fínasta rokk. Góður endir á góðu kvöldi. Virkilega spenntur fyrir tónleikaveislunni næstu daga… þetta er rétt að byrja!

Ég var auðvitað með IXUS myndavélina með mér og smellti af nokkrum ljósmyndum. Tók líka nokkur video… ætli ég reyni ekki að sjóða saman smá Airwaves collection við tækifæri.

Photos, baby! Day 1. Check it:

[Read more…] about Iceland Airwaves 2010 – Dagur 1 – MYNDIR!

Filed Under: Gallery, Ljósmyndir, Tónlist Tagged With: biðröð, bloodgroup, Iceland Airwaves, mammút, nasa, tónleikar

Kjúkligasalat

12. October, 2010 Leave a Comment

Kjúkligasalat - Hlölla Bátar
Kjúkligasalat - Vel gert Hlölli

Sá þetta á skiltinu hjá Hlölla Bátum við Ingólfstorg á einhverju djamminu. Varð náttúrulega að taka mynd til að senda á Flick My Life. Var að grafa þessa mynd upp úr símanum…

Filed Under: Örstutt, Fyndið Tagged With: beikonbátur > allt annað, bomba - það sem Bubbi fær sér alltaf?, Bubbi, djamm, fml, kjúkligasalat > kjúklingasalat, símamynd, vel gert hlölli

Vínsmökkun

12. October, 2010 Leave a Comment

Eru vínsmakkarar nokkuð í hlutastarfi? Eru þeir ekki alltaf í fullri vinnu?

Filed Under: Örstutt, Fyndið Tagged With: 5 aura brandari, áfengi, leikur að orðum

IMDb easter egg – fá gamla útlitið

10. October, 2010 2 Comments

Nokkuð kúl IMDb easter egg sem ég fann óvart: Bættu við “+” fyrir aftan slóðina og þá færðu gamla útlitið (sumir eru víst ekki að fíla nýja útlitið í tætlur). Dæmi, gamla útlitið: http://www.imdb.com/title/tt0137523/+ vs. nýja útlitið: http://www.imdb.com/title/tt0137523/

Ég veit ekki alveg hvort ég sé að fíla að IMDb sé að “localizera” titla á kvikmyndum – ég sé t.d. “Bardagaklúbburinn” þegar ég skoða þessa hlekki fyrir ofan.

Stundum set ég hluti bæði á Facebook og bloggið. Mér finnst ágætt að geyma þetta líka á blogginu. Það er aldrei að vita, Facebook gæti gufað upp allt í einu ;)

Life is a beach I’m just playin’ in the sand

Filed Under: Örstutt, Tækni Tagged With: easter egg, facebook, imdb, internet, tungumál

Mótmæli fyrir utan Alþingi 4. október 2010

5. October, 2010 Leave a Comment

Orðið á götunni í dag var að það væri búið að plana mega partý á Austurvelli um kvöldið. Allir velkomnir, BYOB.

Ég missti alveg af partýunum 2008/2009 þannig að ég varð að tékka á þessu… Ég greip náttúrulega myndavélina með, alltaf gaman að ná góðum partý-myndum.

[Read more…] about Mótmæli fyrir utan Alþingi 4. október 2010

Filed Under: Gallery, Ljósmyndir Tagged With: alþingi, austurvöllur, mótmæli, pólitík

Norðurljós og rósir

20. September, 2010 Leave a Comment

Aw, yeah! Norðurljósatímabilið er hafið. Síðasta þriðjudag sá ég mér til mikillar gleði að það glitti í smá norðurljós. Þannig að ég dreif mig í að ná í myndavélina, þrífótinn og fjarstýringuna og skellti mér út í þeirri vona að ná þeim á mynd.

Norðurljósin voru nú ekki mjög sterk til að byrja með en síðan kom smá tímabil þar sem þau voru dansandi um himininn og ég náði að smella af 2 myndum (hvor mynd er rúmlega 90 sek. “exposure”).

Northern lights and roses
Northern lights and roses

Nú er bara um að gera að fylgjast með norðurljósaspánni og reyna ná fleiri flottum myndum af norðurljósum. Það gætu verið ágæt skilyrði núna á þriðjudaginn.

Auðveldara er að fara fram úr bíl en rúminu.

Filed Under: Gallery, Ljósmyndir Tagged With: þrífótur, norðurljós

  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 78
  • Page 79
  • Page 80
  • Page 81
  • Page 82
  • Interim pages omitted …
  • Page 115
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.
  • Remote Sparks – Async Work

Copyright © 2025 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...