• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

I am official station

Ljósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Andlitslyfting og viðbætur

13. October, 2008 Leave a Comment

Betra (mjög) seint en aldrei, er það ekki? Er búinn að vera á leiðinni að setja inn myndirnar frá Barcelona frekar lengi. Síðan ákvað ég að tefja þetta enn frekar með því að flækja málin – fara út í að nota annað kerfi til að sjá um myndirnar. [Varúð: Hluti af þessari færslu gæti verið óskiljanlegur fyrir suma]

Ég hef hingað til sett inn hinar ýmsu ljósmyndir hérna – til að sjá um það var ég að nota forritið Gallery sem er frekar vinsælt og síðan plugin-ið WPG2 til að blanda þessu fallega við WordPress. En í útgáfu 2.5 af WordPress bættu þeir við svona skemmtilegum gallery fídus. Ég hef séð hvernig fólk er að nota þennan gallery fídus fyrir ljósmyndaalbúm og það var að koma nokkuð vel út – þannig að ég ákvað að prófa þetta.

En til að þessi gallery fídus virkaði almennilega og allt liti vel út þurfti ég að breyta theme-inu mínu töluvert. Það tók sinn tíma, smá PHP hér, smá CSS þar… – en maður fékk oft hjálp á netinu: Using the gallery shortcode, birta EXIF upplýsingar, shutter speed í brotum, fá fyrstu myndina í albúminu til að birtast á forsíðunni, bæta við texta linkum fyrir “Myndin á undan”/”Næsta mynd” og síðan var ég svolítið að herma eftir Matt Mullenweg (gaurnum bakvið WordPress).
– svona til að gefa smá credit fyrir aðstoðina.

Þetta er nú ekki alveg komið, ýmislegt sem er hægt að fínpússa og bæta við – en er “release early and release often” ekki málið? Það kemur bara í ljós með frekari notkun ef það þarf að laga eitthvað – hefur reyndar nú þegar komið eitt og annað í ljós sem ég er búinn að redda.

Það eru ýmsir kostir við að nota þetta innbyggða WordPress gallery kerfi í staðinn fyrir mixið með Gallery forritið og WPG2 plugin-ið:

  • Hægt að kommenta núna á einstakar myndir
  • Það kemur í RSS feed-ið þegar ég set inn nýjar myndir
  • Betri yfirsýn þar sem allar myndirnar eru á einni síðu – maður þarf ekki að fletta í gegnum margar síður til að sjá thumbnails af öllum myndunum – þetta var m.a.s. request frá einum dyggum lesanda, að sjá öll thumbnails á einni síðu
  • Ég þarf ekki sér forrit til að setja inn myndir – set bara inn myndir beint úr WP admin svæðinu

Síðan með áframhaldandi þróun á WordPress þá verður pottþétt áframhaldandi þróun á þessu gallery kerfi – síðan mun ég líka koma með mínar eigin viðbætur… Svo er t.d. komin beta útgáfa af svona tagging plug-in svo maður geti taggað fólk hægri vinstri (ekki ósvipað og í Facebook) – en þegar ég prófaði það var þetta ekki alveg að virka þannig að ég ætla að bíða aðeins með að setja það inn.

Ef fólk tekur eftir einhverju einkennilegu þá endilega koma með feedback – líka ef það vantar einhvern fídus í þetta gallery (t.d. að ná í stærri útgáfu af myndinni) þá er alveg hægt að skoða hvort ég geti ekki bætt því við.

Jæja, nóg af technobabble – myndirnar frá Barcelona eru hérna, í mörgum pörtum: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9 og 10. Ef ég taldi þetta rétt eru þetta allt í allt 661 mynd.

Hérna eru nokkrar myndir sem mér finnst sérstaklega skemmtilegar/flottar/áhugaverðar:

Bjössi
Bjössi
Eðla að éta mús
Eðla að éta mús


úúú, symmetry
úúú, symmetry
Goldfrapp
Goldfrapp


Er glasið að verða tómt? Jebb. Dos combinados!
Er glasið að verða tómt? Jebb. Dos combinados!
Ben Watt - eitthvað töff við þessa mynd...
Ben Watt - eitthvað töff við þessa mynd...


Ringulreið í kringum Hlyn
Ringulreið í kringum Hlyn
Að rita ævisögu mína: "Ungur eg var"
Að rita ævisögu mína: "Ungur eg var"


Whoa... I'm like, really tall
Whoa... I'm like, really tall
Justice á fullu
Justice á fullu


Neon on black
Neon on black
Rave!
Rave!


Hvað meinaru? Ég er ekki á eiturlyfjum.
Hvað meinaru? Ég er ekki á eiturlyfjum.
Þessi var í góðum fíling
Þessi var í góðum fíling


úúú, geðveikur skuggi
úúú, geðveikur skuggi
SonarPub
SonarPub


Soulwax
Soulwax
A-Trak og DJ Mehdi
A-Trak og DJ Mehdi


Just go over there
Just go over there
John Woo?
John Woo?


Rule of thirds, bitches!
Rule of thirds, bitches!
Eitursvart, eitursvalt
Eitursvart, eitursvalt


Haben Sie MDMA?

Filed Under: Ferðalög, Ljósmyndir, Tækni Tagged With: barcelona, bloggið, comment, css, evrópa, Justice, php, plugin, rss, spánn, webdev, WordPress

Barcelone Tour 2008 – part 10 – and that’s it…

11. October, 2008 2 Comments

Síðasti dagurinn. Rétt að rölta um og tékka á hinu og þessu áður en við fórum á flugvöllinn.

[Read more…] about Barcelone Tour 2008 – part 10 – and that’s it…

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir Tagged With: barcelona, evrópa, fljúga, Matur, spánn, tourist

Barcelona Tour 2008 – part 9 – tourist stuff

11. October, 2008 1 Comment

Næstsíðasti dagurinn og við vorum bara að rölta um og túristast.

[Read more…] about Barcelona Tour 2008 – part 9 – tourist stuff

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir Tagged With: barcelona, evrópa, Matur, spánn, tourist

Barcelona Tour 2008 – part 8 – Sónar 2008 by night

11. October, 2008 Leave a Comment

Partýið heldur áfram… stærsta kvöldið? Já, hugsanlega – alla vega var Justice að spila, sem maður var eiginlega spenntastur fyrir [Hvað er ég að bulla? Ég er með myndir af Justice í part 6]. Síðan var líka Soulwax með mjög góða keyrslu og DJ Mehdi og A-Trak voru með eitt besta DJ session sem ég hef upplifað.

[Read more…] about Barcelona Tour 2008 – part 8 – Sónar 2008 by night

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir, Tónlist Tagged With: A-Trak, barcelona, dj mehdi, evrópa, Justice, sónar, soulwax, spánn, tónleikar, Tónlist

Barcelona Tour 2008 – part 7 – Sónar 2008 by day

10. October, 2008 1 Comment

Vissara að rétt tékka á Sónar dagsskránni sem var um daginn.

[Read more…] about Barcelona Tour 2008 – part 7 – Sónar 2008 by day

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir, Tónlist Tagged With: barcelona, evrópa, sónar, spánn, tónleikar, Tónlist

Barcelona Tour 2008 – part 6 – Sónar 2008 by night

10. October, 2008 2 Comments

Fyrsti dagur Sónar 2008 með fullri dagskrá – fullt af góðu stöffi: Yelle, Justice, Frankie Knuckles… Þar sem maður er náttúrulega atvinnu djammari þá tókst mér að misstíga mig – occupational hazard.

[Read more…] about Barcelona Tour 2008 – part 6 – Sónar 2008 by night

Filed Under: Ferðalög, Gallery, Ljósmyndir, Tónlist Tagged With: barcelona, evrópa, Justice, sónar, slys, spánn, tónleikar, Tónlist, yelle

  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 93
  • Page 94
  • Page 95
  • Page 96
  • Page 97
  • Interim pages omitted …
  • Page 115
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Leita að efni

Þetta helsta

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me

Önnur verkefni

  • Bulby – Brainstorming App
  • Don Comodo – Bolir o.s.frv.
  • Remote Sparks – Async Work

Copyright © 2025 Hannes · Hafðu samband / Contact me

  • Bloggið
  • Kvikmyndagagnrýni
  • Ljósmyndir
  • Hvað meinaru með official station?
  • Hafðu samband / Contact me
 

Loading Comments...