
Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Betra viðmót? Betri leit?
Það er smá erfitt að leita að ákveðnum kvikmyndum hérna og engin leið til að skoða allan þennan gagnagrunn (1300+ myndir!) með síum eða öðrum flokkunarleiðum (fyrir utan stafrófsröð og stjörnugjöf). Þannig að ég bjó til nýja vefsíðu þar sem er miklu auðveldara að finna ákveðnar myndir og uppgötva aðrar! Mini Movie Reviews 👈 Tékkaðu á þessu 👀
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↓
October, 2026
-
2026-10-18 23:09
Mögnuð mynd, magnað umfjöllunarefni. Mjög áhugavert. Áhugavert að fræðast meira um Demis Hassabis, DeepMind og alls konar tengdu gervigreind. Gaman að sjá slatta af gömlu myndefni og viðtölum – þau vissu líklega að þau væru að vinna að hlutum sem myndu breyta heiminum. #youtube
0.3 -
2026-10-17 18:07
Fínasta fjölskyldumynd, fínasta afþreying. Fyndin – nóg af kjánalátum. Áhugavert kvikmynda-concept út frá þessum gömlu og frægu teiknimyndum. Aðeins öðruvísi að sjá hana talsetta á íslensku… Áhugavert að það var næstum búið að hætta við að gefa þessa mynd út (hún var tilbúin 2023).
0.3 -
The Lego Movie 2: The Second Part (2019)
2026-10-17 12:03Fyndin mynd og alls konar skemmtilegar vísanir (nánast Easter Eggs). Fín fjölskyldumynd. Mér fannst skemmtilegir details að Lego-ið var oft rispað og slitið til að gefa til kynna að það var notað, búið að leika með það. Fullt af frægum og skemmtilegum leikurum að tala inn á. Myndin "pikkaðist" smá upp seinni partinn – varð skemmtilegri, meira action. Ég tengdi mikið við lagið hjá Beck, Robyn og The Lonely Island um að credits listinn væri besti parturinn 😄 #disneyplus
0.3 -
2026-10-12 23:03
Spennandi sci-fi. Hryllingur og chaos. Fyndið að sjá 1997 tæknibrellurnar (tölvugrafíkina). Mjög skemmtileg nostalgía að sjá þessa mynd núna á risastóru tjaldi og með geggjuðu hljóðkerfi – af því síðast þegar ég sá hana var það í túbusjónvarpi á VHS.
0.3 -
2026-10-05 21:29
Þetta var "made for TV" mynd – og það er frekar augljóst í gæðunum. Ekkert geggjað production value eða geggjaður leikur. Ágætlega kjánaleg. En allt í lagi fjölskyldumynd. #disneyplus
0.3
September, 2026
-
2026-09-26 20:27
Fín Disney fjölskyldumynd. Alveg ágætlega kjánaleg og formúlukennd. En allt í lagi fjölskylduafþreying. #disneyplus
0.3 -
2026-09-15 23:25
Gaman að stækka Superman heiminn og kafa dýpra í söguna bak við Supergirl (og Krypto). Fín action atriði. Ágætlega spennandi. Fín afþreying, en ekkert frábær ofurhetjumynd (frekar týpísk). #hbomax
0.3 -
Star Wars: The Mandalorian and Grogu (2026)
2026-09-13 23:24Mjög gaman að sjá kvikmynda-vinkil á sjónvarpsþættina. Spennandi. Gott action. Krúttlegt samband á milli þeirra. Tónlistin hjá Ludwig Göransson var geggjuð – skapaði viðeigandi stemningu. Skemmtileg nostalgíu tenging við persónur eins og Jabba the Hut. Fyndið/áhugavert að Martin Scorsese talaði inn á þessa mynd. #disneyplus
0.3 -
Masters of the Universe (2026)
2026-09-11 23:45Skemmtileg nostalgía. Spennandi. Fínn húmor – ekkert mjög alvarleg mynd. Betra að vera ekki að pirra sig á lógík holum. 80's stemningin í tónlistinni var nice touch. Gaman hvað Jóhannes Haukur var með stórt hlutverk – #5 á credits listanum. #primevideo
0.3
August, 2026
-
2026-08-28 22:34
Passlega kjánaleg fjölskyldumynd. Nokkur Disney action atriði. Kjánalega fyndin. Ágætis fjölskyldu-afþreying. #disneyplus
0.3 -
2026-08-27 22:32
Mögnuð mynd. Mjög falleg. Skemmtileg blanda af mjög gömlum fjölskyldu-myndum & myndböndum og svo nýju myndefni af jöklum og náttúrunni. Allt efnið frá Andra og fjölskyldu hans gerði þessa mynd svo mannlega og tengda við raunveruleikann – engin of-framleidd og steríl viðtöl. Framsetningin var dramatísk og fékk mann til að hugsa.
0.3 -
2026-08-23 23:24
Skemmtilega klikkað plot. Fínt action. Spennandi. Svartur húmor. #hbomax
0.3 -
2026-08-14 22:39
Mjög skemmtileg mynd. Fyndin. Skemmtilega leikin – áhugaverð áskorun að leika allt öðruvísi persónu (og annan aldur). Mjög fín fjölskyldumynd. #disneyplus
0.3 -
Spider-Man: Brand New Day (2026)
2026-08-13 23:36Mjög fín mynd. Flott myndataka og töff action-atriði. Góður húmor. En líka slatti af drama – ýmis togstreita og þróun á persónum. The Punisher er alltaf svalur.
0.3
July, 2026
-
2026-07-29 22:49
Magnað ferðalag. Mögnuð kvikmynd. Risastór – á svo margan máta. Endalaust af risastórum leikurum. Þetta er algjört listaverk. Frábær myndataka og magnað umhverfi (leikmynd, búningar o.s.frv.). Mjög vönduð mynd. Dramatík og spenna. Tónlistin var líka geggjuð. Löng, en þétt mynd – góður ryþmi.
0.3 -
2026-07-28 19:28
Mjög fyndin vitleysa. Fínasta keyrsla. Spennandi. Góð afþreying. #netflix
0.3 -
Ghostbusters: Frozen Empire (2024)
2026-07-13 23:42Vissulega mjög skemmtileg nostalgía – sérstaklega með gömlu Ghostbusters. Ágætlega spennandi. Skemmtileg mynd. Góð afþreying. #netflix
0.3 -
Ready or Not 2: Here I Come (2026)
2026-07-11 23:40Spennandi mynd. Gefur manni betri innsýn inn í þennan klikkaða yfirnáttúrulega heim. Skemmtilega klikkaður svartur húmor – af því að þetta er svo over-the-top þá dettur þetta meira í grín. #disneyplus
0.3 -
2026-07-07 20:38
Handritið var ekki frábært. Svakalegt magn af þekktum leikurum að tala inn á – en það náði ekki að bjarga þessari mynd. Maður fann alveg fyrir því að þetta var low-budget teiknimynd. Það voru nokkur söngatriði og þetta voru ekki góð lög – textinn skrýtinn og laglínan ekki að virka. En dóttir mín hafði gaman af þessari mynd. #netflix
0.3 -
2026-07-03 21:31
Spennandi og skemmtileg mynd. Nokkuð svipuð stemning og í hinum tveimur myndunum. Ágætis afþreying. Helena Bonham Carter er góð í sinni wacky persónu. #netflix
0.3 -
2026-07-01 23:42
Áhugavert concept. Áhugaverð frásögn. Ágætlega spennandi (thriller). Skemmtilegir leikarar í ýmsum litlum hlutverkum. Alls konar siðblindnar persónur. Mjög áhugavert að þessi bíómynd er byggð á annarri mynd frá 1949: Kind Hearts and Coronets – sem var (lauslega) byggð á bók frá 1907. #hbomax
0.3
June, 2026
-
Harold and the Purple Crayon (2024)
2026-06-27 20:40Mjög skemmtileg fjölskyldumynd. Skemmtileg nálgun á bókinni (bókunum) sem var í grunninn ágætlega einföld (ekki týpískt efni í kvikmynd). Fínasta action og tæknibrellur inn á milli. #netflix
0.3 -
2026-06-26 22:00
Skemmtileg og fyndin mynd. Sniðug og áhugaverð þróun á leikfangasögunni. Gaman að sjá þróunina á grafíkinni á milli mynda allt frá fyrstu Toy Story 1995 – grafíkin núna er eiginlega óaðfinnanleg. Topp fjölskyldumynd.
0.3 -
2026-06-17 23:26
Mjög spennandi mynd – fínasta keyrsla. Töff myndataka. Góðir leikarar. Mjög dularfull mynd (saga). En ég set nokkrar spurningar/athugasemdir við handritið.
0.3 -
2026-06-05 20:52
Áhugaverð og grípandi mynd. Eitt og annað „fyrir minn tíma“ sem ég vissi ekki almennilega af. Legendary lög. Legendary dansar. Legendary tónlistarmyndbönd. Myndin endar 1988 á "His story continues" og það er verið að vinna í framhaldsmynd...
0.3
May, 2026
-
2026-05-30 21:48
Áhugaverð sannsöguleg mynd. Skemmtileg. Fyndin og spennandi. #primevideo
0.3 -
Tom Clancy's Jack Ryan: Ghost War (2026)
2026-05-26 23:03Töff spæjaramynd. Spennandi. Fínt framhald af þáttunum. Passlega löng fyrir góða afþreyingar-keyrslu. #primevideo
0.3 -
2026-05-22 20:02
Töff mynd – flottur teiknimyndastíll. Teymið bak við Spider-Verse og K-Pop Demon Hunters kunna þetta. Góð lög inn á milli. Fínasta fjölskyldumynd.
0.3 -
2026-05-17 22:48
Fyndin. Spennandi. Spooky (og stressandi/spennandi) tónlist. Skemmtilega twisted stemning. Áhugavert og sniðugt concept/plot. Það er ákveðið plot twist sem er mjög svipað og ein önnur nýleg mynd – segi ekki meir 😉 #disneyplus
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 28. August, 2026
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.