Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↓
November, 2011
-
2011-11-04 23:59
Löng og langdregin (hæg). Söngur og dans. Fyrirsjáanleg. Það gerist nánast aldrei að maður spóli áfram í gegnum mynd, en það var gert með þessa mynd.
0.3 -
2011-11-03 22:56
Fyrsta Bollywood mynd sem ég sé :) Skemmtileg. Fyndin. Spennandi. Kjánaleg. Gaman að kynnast öðrum menningarheimum. Ágætis keyrsla. Skemmtileg (fyndin) söng- og dansatriði. Líka hressandi over-the-top action atriði.
0.3 October, 2011
-
2011-10-23 21:36
Fyndin og hugljúf mynd. Skemmtileg. Góð saga. Bangsímon og félagar eru alltaf með einhvern góðan boðskap :) Leit vel út - vel gerð. Líka skemmtileg stuttmynd sýnd á undan - um Nessie (Loch Ness).
0.3 -
2011-10-22 21:35
Nokkuð fyndin. Ekki æðislegur leikur. Handritið ekki nógu solid. Smá kjánaleg á köflum. Stundum líka ekki alveg nógu trúverðug/lógísk.
0.3 -
2011-10-22 00:05
Já, eða s.s. Borgríki eins og hún heitir víst. Mjög kúl mynd. Gaman að sjá svona flottar íslenskar spennumyndir. Sérstaklega áhugavert að myndin öll var tekin upp á Canon 5D Mark II. Skemmtilegt líka að sjá samstarfsmann sinn leika í henni :) Nokkuð brútal á köflum... slatti af ofbeldi. Nokkrar sögur í gangi - sem gat orðið örlítið ruglingslegt á köflum. Spennandi og nokkuð vel leikin. Áhugaverðar persónur.
0.3 -
2011-10-09 12:42
Mjög fyndin mynd. Nett vitleysa og fíflalæti, sem er einmitt yfirleitt fyndnast :) Megan persónan (Melissa McCarthy - "Go" crew reprasent!) var eiginlega best - algjör snilld.
0.3 -
2011-10-03 00:47
Góð mynd. Samt töluvert hægari en trailer-inn gaf til kynna. Bjóst kannski við aðeins meiri action og "mass hysteria". Mikill fókus á rannsóknina á vírusinum. En þetta var spennandi mynd. Fullt af góðum leikurum. Apple voru greinilega að styðja framleiðslu myndarinnar - liggur við að allir voru með iPhone ;) Soderbergh notaði RED myndavélarnar enn og aftur til að taka upp þessa mynd. Ég held að hann sé alveg hættur að nota eitthvað annað... En já, þetta er mynd sem skilur smá eftir - fær mann til að hugsa. Varðandi svona faraldra, hverjum maður á að treysta, hvort lyfjafyrirtækin séu að ýta undir svona hræðsluáróður... Tók líka eftir að strax í hlénu var ég meira meðvitaður um hvernig vírusar og pestir berast, hvað ég var að snerta...
0.3 -
2011-10-02 17:15
Eða "Skaði" eins og hún er kölluð á íslensku. Vel gerð. Nokkuð gott handrit. #RIFF
0.3 -
2011-10-02 16:37
Tragikómedia eins og henni er lýst. Nokkuð fyndin. #RIFF
0.3 -
2011-10-02 16:14
Nokkuð fyndin. Spes persónur. Ágætlega sniðugt handrit. #RIFF
0.3 September, 2011
-
2011-09-29 23:50
Mjög kúl mynd. Flott myndataka. Flott tónlist. Góðir leikarar. Töff andrúmsloft. Spennandi. Gott action. Vel gerð. Vel staðsettar þagnir ;) Frekar brútal á köflum. Aðeins of ofbeldisfull fyrir kærustuna ;)
0.3 -
2011-09-15 23:36
Töff mynd. Spennandi. Góð saga. Nokkuð vel leikin. Drama. Flott myndataka. Vel gerð, vönduð. Töluvert betri en trailer-inn gaf til kynna - hann var ekki alveg að selja mér þetta...
0.3 -
2011-09-08 22:21
Áhugaverð heimildamynd. Frekar brútal stundum. Þessir sígaunar eru frekar spes, hvernig þeir tala, haga sér... Fyndnir - sérstaklega Big Joe, algjör karakter. Myndin er s.s. um hnefaleika (bare knuckle fighting) milli sígauna-fjölskyldna. Minnti mig að sjálfsögðu á Mickey úr Snatch. Nokkuð sorglegt að sjá litlu strákana horfa upp til þeirra sem voru að slást. Þetta "stríð" hjá þeim er frekar kjánalegt... komið út í rugl.
0.3 -
2011-09-03 16:40
Góð mynd. Áhugaverð - gaman að fræðast um þennan hluta af kalda stríðinu. Góðir leikarar. Aaron Sorkin skrifaði handritið þannig að oft var mikið í gangi, hröð samtöl og erfitt að ná öllu.
0.3 August, 2011
-
2011-08-26 22:38
Góð mynd. Fín saga. Leit vel út - flott umgjörð (leikmynd, búningar...). Náttúrulega frekar væmin á köflum. Eiginlega cult mynd - það er alltaf verið að tala um hana og vísa í hana (í sjónvarpsþáttum, bíómyndum..). Sem kvikmyndaáhugamaður fannst mér ég þurfa að tékka á henni ;)
0.3 -
2011-08-13 00:44
Mjög góð mynd. Gott action, og nóg af því. Mjög spennandi. Mjög vel gerð kvikmynd - enda mikið af stórum nöfnum bakvið hana (framleiðendur, leikstjóri, leikarar, handritshöfundar...). Gott fjör. Afþreying í toppklassa.
0.3 -
Exit Through the Gift Shop (2010)
2011-08-11 01:19Mögnuð mynd. Mjög áhugaverð. Banksy er snillingur. Ef þú hefur mikinn áhuga á götulist (eins og ég) þá er þetta klárlega mynd fyrir þig. Ég hafði ekki áður heyrt um Thierry Guetta (eða Mr. Brainwash) - magnaður karakter. Roni Size sá um hluta af tónlistinni, áhugavert... Líka skemmtilegt að Rhys Ifans er sögumaðurinn. Góð heimildamynd.
0.3 -
2011-08-10 00:10
Mögnuð mynd. Frekar brútal í lokinn. Góð áminning að láta alltaf vita þegar með ætlar í fjallgöngu eða eitthvað álíka ;) Myndir byggðar á sannsögulegum atburðum eru alltaf extra áhugaverðar. Gaman að heyra Sigur Rós í lokinn með lagið Festival, passaði mjög vel við.
0.3 -
2011-08-07 00:30
Mjög fyndin mynd. Algjör snilld. Spennandi. Stútfull af þekktum leikurum. Charlie Day var sprenghlægilegur. Síðan brá fyrir Old Spice gaurnum (Isaiah Mustafa).
0.3 -
2011-08-04 21:38
Virkilega góð mynd. Gott handrit. Góður leikur. Mjög spennandi. Einstaklega gaman af svona frumlegum og öðruvísi kvikmyndum. Mjög skemmtilega útfærð miðað við að hún gerist öll í litlum kassa/kistu.
0.3 -
2011-08-02 20:37
Spennandi. Nettur B-mynda fílingur. Smá fyndin/hlægileg. Flottir zombies. Frekar mikið rugl stundum. Splatter.
0.3 July, 2011
-
2011-07-18 22:57
Gott action. Flott - töff tæknibrellur. Spennandi. Veit samt ekki alveg með þessi vopnaútskýringabrot - kúl einu sinni eða tvisvar en stundum óþarfa og stoppaði keyrsluna. Gaman að sjá DJ AM með cameo.
0.3 -
2011-07-12 00:20
Gott action. Spennandi. Ekta Jason Statham mynd. Handritið hefði getað verið betra, en það er svosem ekkert nauðsynlegt fyrir svona myndir.
0.3 -
2011-07-11 00:06
Dökk. Drungaleg. Þung. Twisted. Nett disturbing (Darren Aronofsky fílar hugsanlega þannig myndir). Smá skuggalegt/óþægilegt hvað hún (aðalpersónan, Nina Sayers/Natalie Portman) er distured/trufluð. Mamman er líka nett klikkuð, kannski að einhverju leyti valdur geðveikinnar (mikil pressa, lifa lífinu sem hún gat ekki lifað).
0.3
Áhugaverðar/skemmtilegar myndlíkingar (svart og hvítt notað hér og þar). Hún býr í ekta pínulítilli Manhattan íbúð. Darren notaði effect sem svipaði svolítið til SnorriCam, nema það var fylgst með persónunni að aftan (mjög nálægt) - kannski hægt að kalla það NeckCam ;)
* Ég horfði á megnið af þessari mynd í flugvél. -
Transformers: Dark of the Moon (2011)
2011-07-05 00:08Töff mynd. Spennandi. Gott action - góð keyrsla, nánast stanslaus. Virkilega flottar tæknibrellur - leit mjög vel út. Líka ágætlega fyndin á köflum. Maður fer náttúrulega á svona mynd með ákveðið hugarfar - ekki pæla of mikið (trúverðugleika og þess háttar) ;) Þetta var mjög fín afþreying. Mér fannst byrjunin líka mjög skemmtileg - gaman að blanda þessum sögulega atburði þarna inn og endurskapa hann.
0.3 June, 2011
-
2011-06-24 00:36
Mjög fyndin - aðallega fyrri hlutinn. Svo verður þetta nokkuð týpísk rómantísk gamanmynd. Skemmtileg mynd. *Sá þessa í flugvél.
0.3 -
2011-06-21 00:31
Töff mynd. Spennandi. Áhugaverðar pælingar (varðandi heilann og getu okkar). Trailer-inn var svolítið villandi, gaf ranga mynd af plot-inu.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 24. July, 2024
Bjössi says
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Hannes says
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
maple says
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
Hannes says
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
maple says
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Haukur says
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
siggasig says
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Hannes says
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Geiri says
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Hannes says
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Sara says
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
Hannes says
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.