
Enn annað viðburðaríkt ár 🙏 Eins og ég gerði fyrir 2021 og 2020 (og að vissu leyti 2019) þá eru hérna nokkrir eftirminnilegir 2022 atburðir.
[Read more…] about 2022 í baksýnisspeglinumLjósmyndir, kvikmyndagagnrýni, ferðasögur, fréttir af Hannesi og annað skemmtilegt :)
Enn annað viðburðaríkt ár 🙏 Eins og ég gerði fyrir 2021 og 2020 (og að vissu leyti 2019) þá eru hérna nokkrir eftirminnilegir 2022 atburðir.
[Read more…] about 2022 í baksýnisspeglinumJæja, það er aftur komið að því… Iceland Airwaves. Miðvikudagur, fyrsti dagurinn. Spennandi. Ég gat reyndar ekki byrjað mjög snemma þar sem ég var í skólanum og svo vorum við að vinna í hópverkefni eftir tímann. En ég brunaði heim og skellti mér í Airwaves gallann. Bjössi var víst á leiðinni í Hörpu og Hlynur og Lalli voru á NASA. Þegar ég var búinn að finna bílastæði hjá Kolaportinu/Bæjarins beztu (algjör heppni!) tók ég þá ákvörðun að tékka á Hörpunni – hafði ekki ennþá upplifað tónleika í Hörpu og fannst upplagt að prófa Iceland Airwaves í Hörpu.
Ég náði restinni af Ourlives – fínasta íslenskt rokk. Benjamin Francis Leftwich þurfti víst að afboða vegna veikinda þannig að við Bjössi þurftum að finna hvað við vildum tékka á næst. Við náðum í farartækið hans Bjössa í bílakjallaranum og keyrðum fram hjá NASA þar sem var alveg rugl löng röð. Þar sem maður hefur ekki góða reynslu af svona röðum þá ákváðum við að sleppa því að bíða í röð. Fórum í staðinn á Gaukinn þar sem Blaz Roca var að spila ásamt góðum vinum. Erpur/XXX Rottweiler ná alltaf að pumpa upp góða stemningu.
Við Bjössi vildum tékka aftur á NASA hvort það væri ennþá svona biluð röð þar, af því að við vissum í raun ekki hvað við vildum sjá næst. Röðin náði ennþá nánast að Alþingi þannig að við snérum við og fórum á Café Amsterdam. Þar hittum við Einar Birgi, Áka, Kristínu og fleiri. Já, það er eitt það skemmtilega við Airwaves að maður hittir alltaf fullt af hressu liði :) Þarna var hljómsveit sem kallar sig Hljómsveitin Ég að spila – minnti svolítið á svona klassískar bílskúrshljómsveitir að prófa sig áfram ;)
Við Bjössi beiluðum fljótlega á því og fórum aftur á Gauk á Stöng þar sem EmmSjé Gauti var á sviðinu. Við tjilluðum bara á kantinum við eitthvað borð með Ásdísi og biðum eftir næsta atriði. Það var nefninlega Valdimar – hápunktur kvöldsins, mjög skemmtileg tónlist og góð stemning. Kristín slóst í hópinn og líka Hlynur fyrir rest.
Ég tók náttúrulega nokkrar ljósmyndir, eins og ég geri stundum ;)
Til hamingju allir! Það er hátíð í bæ.
[Read more…] about Iceland Airwaves 2011 – Dagur 1 – Umfjöllun og myndir
Eitt við það að taka á filmu – maður er svolítið að spara þetta, reyna að vanda sig við hverja mynd og svo grípur maður ekki alltaf í filmuvélarnar. Þannig að það getur tekið heilt ár að klára eina filmu. Mér sýnist að á þessari filmu séu aðallega myndir frá sumrinu 2009 og sumrinu 2010. Kannski er það eitthvað við sumarið sem fær mann til að draga filmuvélarnar fram?
Byrjaði kvöldið á off-venue tónleikum á Hressó – Think About Life sem við náðum ekki að sjá á Nasa (sjá: fáránlega löng biðröð). Virkilega hress hljómsveit – gott stöff. Hefði alveg viljað sjá tónleikana á Nasa. Ég held að á Airwaves 2011 þá ætla ég ekki að taka neina sénsa – helst bara planta mér á einum stað og ekki hreyfa mig.
Síðan hoppaði maður á American Style til að fá sér smá að borða áður en maður skellti sér á Listasafnið. Þar var víst einhver töf… Bang Gang byrjaði svo, ca. 40 mínútum á eftir áætlun. Barði svona nett súr eins og alltaf :) Næst voru það Tunng – jolly rock punktaði ég hjá mér.
Svo var það Bombay Bicycle Club næstir upp á svið. Gott stöff. Fínasta tónlist. En að lokum (á Listasafninu a.m.k.) var það stærsta atriði Iceland Airwaves ’10 – Robyn. Salurinn tæmdist töluvert eftir Bombay Bicycle Club (kannski var fólk að flykkjast á Hercules & Love Affair?) þannig að maður náði að troða sér nokkuð framarlega… síðan beið maður eftir að partýið byrjaði. Gott stuð hjá Robyn, hélt uppi mjög góðri stemningu.
En Robyn er alveg skuggalega lítil… hún var samt á klikkuðum klossum. Mér fannst eitthvað skrítið þegar rótarinn var að prófa hljóðnemann og hann þurfti að beygja sig töluvert niður til að ná í hann, en það var víst passleg hæð fyrir Robyn. Ég er sáttur með að hún tók cover af Cobrastyle (með sænsku hljómsveitinni Teddybears) – gífurlega hresst lag (enda á Hress 2007).
Já, síðan fékk hún sér banana í miðjum tónleikum – um að gera að fá smá næringu eftir að hafa dansað um allt sviðið. En það er skandall að fólk hafði ekki metnað/þolinmæði til að klappa hana upp – ég er á því að hún hefði alveg verið til í að taka 1-2 lög í viðbót. Rótarinn kom og lagaði hljóðnema-snúruna, hann hefði ekki gert það ef þeir voru bara að fara að pakka saman. Fólk var kannski að flýta sér of mikið á næsta stað? En ég meina, stærsta atriðið á Airwaves 2010… ég bjóst alla vega fastlega við uppklappi.
Eftir Robyn skellti maður sér á Nasa þar sem maður hlammaði sér í leðursófa aðeins til að slaka á. En það var ekki mikið að gerast á Nasa þannig að maður skellti sér á Venue. Þar var einhver töf á dagskránni… XXX Rottweiler voru víst á leiðinni upp á svið þótt þeir hefðu átt að byrja fyrir klukkutíma. Rottweiler hundarnir ná alltaf að pumpa upp stemninguna – þótt þeir séu nokkurn veginn yfirleitt með sama prógrammið. Mér fannst reyndar aðeins meiri stemning í fyrra.
Síðan var það hljómsveitin sem ég var aðallega að bíða eftir: Jungle Fiction – algjör snilld. Fáránlega góð stemning. Virkilega góð keyrsla. Þessir gaurar eru svona ca. 19 ára – rétt að byrja… þeir eiga eftir að verða HUGE. Þeir eru að spila ákkúrat raftónlist sem ég fíla í tætlur – hratt og hart elektró.
Næst tékkaði ég á þýska plötusnúðinum Shumi á Apótekinu (ekki mikið annað í gangi af Airwaves dagskránni). Aðeins of sveitt til að vera þarna einn… þannig að ég fór á Bakkus og svo á Kaffibarinn til að hitta eitthvað af crew-inu.
Hellingur af myndum, photos, billeder, fotografen..:
[Read more…] about Iceland Airwaves 2010 – Dagur 4 – Partý, partý… partý myndir